FAXE KALKNÁMA

EFNIS OG RÝMISGREINING Í NÁMUNNI

Bærinn Faxe er staðsettur á suðurhluta Sjálands og liggur bærinn við bjargbrún sem myndast hefur við námugröft á kalsíum sem unnin hefur verið úr námunni og hefur bærinn að mestu byggst upp vegna námunnar. Enda hefur hún verið helsti atvinnuvegur stórs hluta bæjarbúa í gegnum tíðina. Í þessu verkefni velti ég fyrir mér hvernig hægt væri að draga saman efniskenndina og rýmisupplifunina úr námunni og miðla henni áfram. Að standa í þessum gríðarstóra gíg, sem er algerlega úr mannlegum skala og með svo einsleita efniskennd er sérstök upplifun. Umhverfið svo ljóst og einsleitt. Ég gerðir tilraunir með að taka seríu ljósmynda í allar áttir frá einum sjónarpunkti og líma þær svo saman til að reyna að skapa 360 gráðu upplifun af mismunandi staðsetningum í námunni. Við sem einstaklingar getum einungis upplifað umhverfi okkar frá einum punkti á hverri stund. Við gerð 360 mynda ertu í raun að skapa kúlu sem er klæddd að inna með ljósmyndum sem hafa verið teknar í samsvarandi áttir. Þeirri upplifun reyndi ég svo að vinna með lengra, og snúa í raun við kúlunni sem er hjúpuð ljósmyndum að innan og klæða kúluna að utan með efniskenndinni sjálfri. Úr urðu þrjár kúlur klæddar kalkefni úr misgrófu jarðefni úr námunni. Í framhaldi ljósmyndaði ég allar hliðar á kúlunum að utan og límdi saman til að mynda 360 gráðu mynd af flatarmáli kúlunnar og svo gerði ég tilraun til að fletja út þá ljósmynd einsog um væri að ræða hýði af mandarínu.

Seinna skref verkefnisinns vildi ég reyna að draga fram formfræði á óbeinan hátt útfrá efniskennd námunnar, þá tók ég leir úr námunni og lét hann síast í gegnum jarðefni úr námunni af mismunandi grófleika. Þegar leirinn hafði síast gegnum jarðefnið og storknað á svartri plötu undir jarðefninu vann ég útfrá stefnum sem mynduðust í storknuðum leirnum á plötunni.

faxe-kalkbrud-flint-flores-axel
faxe-kalk-gleraugu-flores-axel
 
faxe-kalk-grafa360-flores-axel
 
faxe-kalk-3-flores-axel
 
faxe-kalk-steinar-flores-axel
faxe-kalk-sandur-flores-axel
faxe-kalk-grjot-flores-axel
faxe-kalk-threnna-flores-axel

 

faxe-kalk-mandarina-flores-axel
faxe seria1 flores axel.gif
faxe seria2 flores axel.gif